Kransakökur

Kransakökur eru vinsælar á veisluborðið og ómissandi í fermingarveisluna fyrir marga. Okkar kransakökur eru skreyttar með handgerðum sykurmassa blómum og fiðrildum ásamt kransakonfekti sem er hringinn í kringum kökuna. Velja þarf lit á skreytingar sem geta verið; hvítar,  rauðar, gular, bleikar, bláar, grænar, fjólubláar og appelsínugular. Við gerum kransakökuturna í eftirfarandi stærðum; 20, 30, 40 og 50 manna. Ef óskað er eftir kransaköku fyrir stærri hóp, getur verið betra að taka tvær minni. Panta þarf kransaköku með viku fyrirvara, en fyrir fermingar borgar sig að vera tímanlega og panta með 2-3 vikna fyrirvara þar sem sumir fermingardagar fullbókast fljótt.

Þessir dagar eru fullbókaðir hjá okkur eða að fyllast:

        • Fullbókað þessa daga: 20. mars til og með 3. apríl 2023

        • Fullbókað þessa daga: 7. apríl, 9. apríl og 10. apríl 2023

         

Kransakökuhorn eru skreytt með handgerðum marsipanrósum og súkkulaðiskrauti. Velja þarf lit á marsipanrósirnar og eru hægt að velja um hvítar, ljósar, rauðar, gular, bleikar, bláar, grænar, fjólubláar og appelsínugular. Hornið er fyllt með kransakonfekti sem er með súkkulaði á botninum. Tvær stærðir eru í boði, 30 og 40 manna. Panta þarf kransakökuhorn með vikufyrirvara, en fyrir fermingar borgar sig að vera tímanlega og panta með 2-3 vikna fyrirvara þar sem sumir fermingardagar fullbókast fljótt

Tekið er á móti pöntunum á virkum dögum í síma 5666 145 frá 9:00 – 16:00. Einnig er hægt að senda pöntun rafrænt hér og verður staðfesting send næsta virka dag.

 Verð
Kransakaka 20 manna          19.920
Kransakaka 30 manna          27.470
Kransakaka 40 manna          35.680
Kransakaka 50 manna          43.340
Kransakökuhorn 30 manna          33.430
Kransakökuhorn 40 manna          43.680
Kransakökukonfekt              140