Bolludagur 2026

BOLLA BOLLA 2026

 

Bolludagurinn í ár er mánudaginn 16. febrúar og verðum við þá með fullt af gómsætum rjómabollum. Í ár ætlum við að bjóða uppá 3 gerðir af gerdeigsbollum og 6 gerðir af vatnsdeigsbollum.

Fyrstu bollurnar koma fimmtudaginn 12. febrúar og verða það þessar klassísku, gerdeigsbollur með rjóma og sultu ásamt vegan gerbollum. Í Vatnsdeigi verða það karamellubollur og klassísku bollurnar með rjóma og sultu.

Á föstudeginum bætist svo við ein gerð af vatnsdeigsbollum, með Baileys

Allar gerðir verða svo í boði um helgina og á sjálfan bolludaginn.

  • Gerbollur og vatnsdeigsbollur með sultu og rjóma 770,-kr
  • VEGAN bolla 770-kr
  • Allar bragðbollur 790,-kr
  • Ef keyptar eru 10- 49 bollur er 5% afsláttur
  • Ef keyptar eru yfir 50+ bollur er 10% afsláttur.
  • 3 gerðir af gerdeigsbollum; með rjóma og sultu, með rjóma án sultu og VEGAN bolla með rjóma og sultu.
  • 6 gerðir af vatnsdeigsbollum; með rjóma og sultu, með rjóma án sultu, með jarðarberjarjóma, með karamellurjóma, með baileysrjóma, og með oreorjóma.

Bolludagstilboð 2026